Hippinn
13.2.2008 05:14:37 / elba

Jónas. Minning

Jónas Hermannsson

Fæddur 7 mars 1946

Dáinn 4 september 2004 

Teddi og Jónas

Feðgarnir og veiðifélagarnir Teddi og Jónas.

Þetta er síðasta myndin sem tekin var af þeim saman.

Vil ég benda á heimasíðu Jónasar (sjá link hér á síðunni)

Þar eru margar stórkostlegar myndir m.a. úr veiðiferðum þeirra.

Jónas Mágur minn hefði orðið 59 ára í dag 7 mars 2005. Svo fallegar minningar má finna í vegarslóð lífs hans, því er margs að minnast og margt að þakka fyrir. Persónuleiki hans einkenndist af ró, hlýju og notalegheitum. Þessi stóri glæsilegi maður með hlýjan vinarfaðm, vildi vera til staðar fyrir vini sína, sorg og gleði voru honum ekki óviðkomandi, alltaf vildi hann fylgjast með lífinu, vissi sjálfur að ekki var alltaf tóm hamingja í boði. Hann kom síðast til Eyja á þjóðhátíðinni í sumar 2004, við stórfjölskyldan eyddum saman tæpri viku, dýrmætum dögum og ljúfum. Hann vildi taka þátt í undirbúningi þjóðhátíðarinnar, vissi að það var aðeins hálf ánægjan að mæta bara þegar allt væri byrjað. Þessir dagar eru okkur mjög dýrmætir því Jónas sjálfur lagði ríka áherslu á að fjölskyldan héldi þjóðhátíð saman en auðvitað grunaði engan að Jónas ætti aldrei afturkvæmt í Eyjarnar, mánuði seinna lést hann í svefni, banamein hans var hjartabilun.  Jónas var mikill náttúruunnandi, elskaði óbyggðir, heiðarnar, vötnin, fjöllin og naut þess að fara á veiðar, margar sögur voru sagðar af ferðum inn á óbyggðirnar og mátti líkja sögum hans við málverk, svo áhrifarík var frásögnin. Besti ferðafélagi hans var sonur hans Teddi, þeir höfðu farið margar veiðiferðirnar saman og voru í einni slíkri fyrir 3 árum þegar Teddi varð bráðkvaddur, höfðu þeir farið til að veiða jóla rjúpuna daginn fyrir Þorláksmessu 2001. Mikið áfall og þung sorg og verður að segjast eins og er að Jónas varð aldrei samur, hann syrgði son sinn sárt, en hlýjan og væntumþykjan gagnvart okkur hinum varð sterkari, Jónas elskaði okkur öll og sýndi það. Það er tómarúm, sársauki og djúpur sár söknuður hjá okkur sem eftir lifum, því er það dýrmætur fjársjóður að eiga minningar um ljúfmennið Jónas Hermannsson

Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 59837
Dagsetning
22. mars 2010
Klukkan
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 13 október
Leitarbox