|
|
13.10.2008 23:04:13 / elba
Ef þið hefðuð lagt 100.000 krónur í að kaupa hlutabréf Nortel fyrir einu ári síðan væri verðmæti bréfanna í dag um 4.900 krónur.
Hefði sama fjárfesting verið lögð í Enron væri sú eign í dag um 1.650 krónur.
Hefðuð þið keypt bréf í World Com fyrir 100.000 krónur væri minna en 500 kall eftir.
Hefði peningurinn hins vegar verið notaður til að kaupa Egils-bjór fyrir einu ári síðan þá hefði verið hægt að drekka hann allan og fara síðan með dósirnar í endurvinnslu og hafa um 21.400 krónur upp úr því.
Þegar ofangreint er athugað virðist vera vænlegur kostur fyrir fjárfesta að drekka stíft og endurvinna!
»
11.10.2008 17:00:55 / elba
Má nefna daginn í dag, fuglar himins syngja lífinu lag, þetta syngur vinur minn hann Bjartmar handbremsuhippi á disknum "Ekki barnanna beztur" það er gott að hlusta á hippann þegar loftbóluhagkerfið er sprungið, vísitölufangelsið er orðið að veruleika fyrir löngu, flest okkar erum þar innmúruð, dæmd óskilorðsbundið um ókomin ár, vitum hvorki tíman né sektina þar sem landráðamenn loftbólunnar hafa ekki ákveðið hve þungan dóm Íslenska þjóðin fær fyrir glæp þeirra. En hvað með það fuglar himinsins halda áfram að syngja lífinu lag, sólin skín á réttláta og rangláta, lífshjólið snýst. Ég ætla að hlusta aðeins meira á hann Bjartmar og ráðlegg ég þér að gera slíkt hið sama, textar hans hitta svo í mark þessa dagana, hann er gulls ígildi, ekki hægt að gengisfella hann né ríkisvæða.
»
10.10.2008 17:58:29 / elba
Ég hef ekki bloggað lengi, enda sést það á síðasta bloggi sem er með landslagi tunglsins svo fjarri er þetta raunveruleika dagsins í dag, ef þetta væru áhyggjur morgundagsins þá vildum við öll glöð skipta. Kreppan sem skollin er á snertir okkur öll og höfum við misjafnar aðstæður til að takast á við vandamál og áföll sem þessu fylgir. En sumum eru allar bjargir bannaðar, námsmenn erlendis eru í alvarlegum vanda, fá ekki að taka innistæður úr bönkum til að greiða húsaleigu, mat eða annað sem fylgir daglegu lífi. Ég á skyldfólk sem er í námi í Danmörku, þaðan eru ekki góðar fréttir, engin leið til að fá fé til daglegra þarfa, þau eru með börn á framfæri sínu og er staðan vægast sagt alvarleg. Við vorum að hugsa um að senda þeim gjaldeyri með því að hafa upp á farþegum til Kaupmannahafnar og biðja þá fyrir þessa peninga þar sem búið er að loka fyrir öll bankaviðskipti milli Íslands og Danmerkur en nú fær enginn gjaldeyri nema framvísa farseðlum, hvað er þá til ráða? Einn af námsmönnum þarna úti var að fá þær upplýsingar að búið væri að loka bankareikningi hennar og millifæra alla peninga hennar til Íslands, þeir vildu ekki skipta lengur með íslensku krónuna eins og staðan væri í dag. Hvert á Íslenskur ríkisborgari að leita í svona vanda?
»
27.01.2008 23:12:16 / elba
Það er nú ekki á það bætandi að skrifa um lætin í pólitíkinni í Rvk, en ég get ekki annað en lagt inn orð í þá umræðu. Veikind Ólafs F hafa verið dregin inn í umræðuna með afar ósmekklegum hætti, ég hlustaði á Heimir á Bylgjunni morgunin eftir borgarstjórnarskiptin, þar þjarmaði Heimir svo að blessuðum manninum allt vegna þeirra veikinda sem hann hafði átt við að stríða. Síðan hafa fjölmiðlar, andstæðingar og svokallaðir skemmtikraftar gjörsamlega gert allt til að rústa manninum. Ef Ólafur hefði verið að jafna sig eftir hjartaáfall, krabbamein eða annan samfélagslegan viðurkenndan sjúkdóm þá hefði enginn vogað sér slíka framkomu, þá hefði honum verið sýnd bæði virðing og tillitsemi. Hafi einhverntímann átt við að sýna aðgát í nærveru sálar þá er það nú. Sjúkdómur Ólafs var geðrænn, þess vegna leyfir þverskurður þjóðfélagsins að sýna sitt rétta viðhorf og í hnotskurn þá fyrirlitningu, fordóma og grimmd sem geðsjúkum er sýnd árið um kring. En hvað ætli þeir séu margir í borgarstjórn Rvk bæði í minni og meirhluta sem hafa vottorð um geðheilbrigði sitt? Sennilega er það Ólafur einn. Gleymum ekki geðsjúkum og sýnum aðgát i nærveru sálar.
»
05.01.2008 23:39:55 / elba
Þetta er búið að vera löng fjarvera frá bloggheimum en ekki að yfirlögðu ráði. Ég hef virkilega saknað félaga minna á vefnum, þetta sérstaka innlit útlit samband við bloggara kemur í staðinn fyrir kaffisopaheimsóknir heimavinnandi húsmæðra hér áður fyrr, þegar þær skruppu aðeins í heimsókn yfir götuna til Stínu eða Siggu fengu sér einn kaffibolla heyrðu nýjasta bæjarslúðrið áður en þær þutu heim aftur til að setja upp kartöflurnar, þá komu eiginmenn heim í hádegismat, fengu steiktan fisk með laukfeiti, soðnar kartöflur og síðan sætsúpu í eftirrétt. Vaá ég man þá daga, er maður gamall eða kemur þessi fortíðarljómi yfir mann alltaf um áramót? Þá skal maður alltaf fara í einhverskonar uppgjör, eins og það sé ekki nóg að klára bókhaldið í bakaríinu til endurskoðun...þá þarf maður að bæta því á sig að skoða heilt liðið ár 2007!! hvað það gaf og hvað það tók, hvernig stóð ég mig, er sál mín sæl og hjartað sátt??? En árið er liði í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, að sætt sig við það sem ég get ekki breytt er mitt áramótaheit. Kæru vinir ég óska ykkur blóma,ástar og friðar á nýju ári....hippakveðjur Helga
»
10.07.2007 22:51:40 / elba
Þetta var strembinn júní mánuður, þegar verkferlið var
ákveðið, hvernig ætti að vista og skrá allar þessar heimildir sem
mér hafa borist, þá var ekki eftir neinu að bíða. Ég þurfti
að sjálfsögðu að vinna mína vinnu í bakaríinu og hverjum degi en
eftir það þá lá mín leið niður á bókasafn því þar var afkastamikill
skanni og varð ég mun fljótari að vinna þær myndir þar sem eftir
voru. Þannig að 12 stunda vinnudagur samanlagt varð "daglegt
brauð" hjá bakarafrúnni. En svo tók við mikið og flókið
tæknilegt ferli sem snillingarnir, Daníel, Daði, Jóhanna, Smári og
Hlynur Ólafs sáu um, þvílík töfrabrögð og snilld, lærði mikið
....eða vissi nú hve ég kunni lítið. En við höfðum þetta og
er slóðin htt://byggdin1973.eyjar.is
Þó síðan sé vel á veg komin þá erum við ekki búin að koma öllum
upplýsingum inn en þær koma, einnig allar
leiðréttingar.
»
16.05.2007 19:54:45 / elba
Ég hef ekkert sett neitt nýlega hér inná bloggið um verkefnið
"Byggðin undir hrauninu" Það er enn í fullri vinnslu og berast
myndir og bréf reglulega. En það sem ég er að vinna í þessa
dagana er að skanna þessar myndir í réttri upplausn, við þurfum að
hugsa til framtíðar þegar kemur að vistun þessara gagna og
heimilda. Við munum vinna hratt og mikið allan júní mánuð til
að geta opnað vefinn sem á að hýsa allar þessar heimildir, og er
markið sett á goslokahelgina. Þess vegna er ég ekkert að sýna
ykkur allt of mikið núna.
»
10.05.2007 22:48:01 / elba
Evrovision verður ekki alveg eins spennandi á laugardaginn fyrst
Ísland komst ekki áfram. Eiríkur var mjög góður en bestur var
hann Stefán eyjapeyinn sæti sem ættaður er frá Kirkjubæ, sláandi
líkur Rabba frænda sínum. En móðir Stefáns er skólasystir
okkar Halldórs hún Bára frá Kirkjubæ. Já það má nú segja að
árgangurinn sé góður til undaneldis, hvaða árgangar hér
geta státað af afkvæmum sínum í Evróvision nema við
1955.
»
09.05.2007 18:43:38 / elba
Það fór virkilega um mig að sjá myndbandið sem tekið var á dögunum
þegar siglt var upp að Bakkafjöru. Aðstæður þarna voru í
meðallagi miðað við veður, sjólag og ölduhæð, en enginn hefði
viljað lenda í þessu í myrkri eða snjóbyl, úff! og þetta sem
gerðist þarna var 200 metrum fyrir utan áætlaðan varnargarð eða
rennu. Eitt hef ég lært af lífinu, það er að hlusta á þá sem
eru eldri og reyndari, virða lífsreynslu þeirra, minnast þess
að það er til fólk sem farið hefur þennan veg á undan mér og veit
hvert leiðin liggur. Ég er sjóhræddur landkrabbi og ætla mér
ekki að deila við dómarann í þessum efnum, ef ég á ekki að
taka mark á sjómönnum Vestmannaeyja hverjum þá? Miðað
við þetta myndband þá er Bakkafjara lognmollu höfn sem nýtist
aðeins í bestu veðrum. Æi ekki klúðra þessu, hugsum málið vel
og skoðum þetta vandlega. Hvernig fór þetta með
sjóvarnargarðinn í Grímsey sem sérfræðingar silgingamálastofnunnar
hönnuðu? fór hann ekki í næsta skell? og er nokkuð eftir af
honum í dag? Þeir hlustuðu ekki á heimamenn þá.
»
08.05.2007 08:03:43 / elba
Hjálmar Árnason fráfarandi þingmaður framsóknarflokksins hefur
verið ráðinn forstöðumaður fagskólans sem verður á svæði gömlu
herstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli "Staða Hjálmars var
ekki auglýst og því hafði enginn annar tækifæri til þess að sækjast
eftir stöðunni" "En hann var ráðinn vegna þess að reynsla
hans á eftir að skipta sköpum" Segir Árni Sigfússon sem verður
formaður skólans. En fyrsta verkefni skólans verður að setja
á fót flugakademíu.

»
05.05.2007 12:56:44 / elba
Jæja nú er maður hissa....Siv skrifaði undir samning í dag um
tannskoðun á 3 og 12 ára börnum, ekki eins og margir halda
að þetta séu öll börn í landinu frá 3ja til 12 ára
heldur eru þetta bara 2 árgangar eða samtals 8000 börn
á landinu sem teljast til þessa aldurs þ.e. 4000 börn á 3ja
ára aldri og 4000 börn á 12 ára aldri þau fá samtals 70
millur eða 8.750 kr framsóknar framlag á hvert barn sem
tilheyrir þessum úrvalshópi. Hin börnin verða enn að
eiga viðskipti við Karíus og Baktus. Maður ætti kansi að prufa að
fá ál í tennurnar ef það þyrfti að bora næst. Nóg verður af
þeim skít eftir kosningar ef fólk fer ekki að vakna upp af
þessari martröð.
»
04.05.2007 18:25:55 / elba
Fékk bækling í póstkassann, Ísland á útsölu! allt á
að seljast! Álið er málið fyrir marga, virkjanafíkn er orðin
veruleiki. Ég gerði mér alls ekki grein fyrir alvarleika
málsins, öll þessi mengun, þennslan sem verður í
efnahagslífinu, og þessi hrikalega græðgi sem birtist í
tortímingarhvöt um að eyðileggja náttúru Íslands. Ja hérna
hér, það er aldeilis ábyrgðarhluti að kjósa í dag.
»
29.04.2007 17:29:19 / elba
Það liggur mér þungt á hjarta sá slæmi aðbúnaður sem er á mörgum
deildum Landspítalans, starfsfólk vinnur undir óeðlilegu álagi við
óviðunandi aðstæður og sjúklingar eru ekki að fá aðbúnað né
þjónustu sem ætti að vera sjálfsögð hjá einni af ríkustu
þjóð heims. En af öllum deildum á LSP þá er aðbúnaðurinn
sennilega verstur á deild 33C. Ég hef skrifað mjög
mörgum þingmönnum og einnig heilbrigðisráðherra en fæ engin
svör. En einn frambjóðandi svaraði mér og þó svo að það svar
hafi engan veginn verið huggun, skýring eða lausn þá var það þó
svar. Ég hef ekki áhuga á að leiða einhvern fram sem sökudólg
í þessu máli og engum er það til gagns að hengja einvhern hér,
en þið getið skoðað myndir hér máli mínu til sönnunar
það verður að gera eitthvað í þessu og það strax, ekki bíða fram
yfir kosningar, þeir sem eru við stjórnvölinn núna verða það næsta
mánuðinn a.m.k. og fyrst það eru til peningar er þá ekki tími til
kominn að fara forgangsraða þarna í heilbrigðiskerfinu og byrja þar
sem niðurskurðurinn hefur verið mestur og aðbúnaðurinn
verstur. Geðlæknar funduðu nú um helgina og lýsa yfir
þungum áhyggjum af fækkun legurúma, sem hefur verið á 10
árum -100 legupláss eða 40% skerðing. En góðu fréttirnar eru
þær að í gærkvöldi hafði annar frambjóðandi samband við
mig, telur málið alvarlegt og vill gera sitt til að breyta þessu,
þar voru engar afsakanir eða tölfræði heldur vandinn viðurkenndur,
sá frambjóðandi heitir Árni Johnsen.
Þið getið skoðað fleiri myndir með því að smella
Hér
Geðdeild 33C á
LSP 17 apríl 2007

Aðbúnaður þingmanna, 24 apríl 2007, sérhönnuð húsgögn,
kostnaður 45 milljónir
»
26.04.2007 15:08:29 / elba
Margo hefur svo oft fengið mig til að hugsa og staldra
við, alltaf fundist við heppin hér í Vestmannaeyjum að fá
hana til að setjast hér að. Fer oft ótroðnar slóðir, hún er
svo mikill hippi. Síðasta útspil hennar er frábært, nú ætlar
hún að gerast "góði hriðirinn" og taka við gömlum hlutum sem hún
síðar selur, ágóðinn rennur til góðgerðarmála, og eins
og hún orðar sjálf "það sem er fánýti fyrir einum er fjársjóður
fyrir öðrum" Margo þetta er tær snilld. Nú er ég að
fara taka til í geymslunni hjá mér og þar er ýmislegt sem ég hef
ekki tímt að henda, en að geta gefið og það seinna orðið til góðs
fyrir aðra.......nú verður sko gaman að taka til í
geymslunni. Þökk sé Margo
»
25.04.2007 00:10:03 / elba
Ég horfði á útsendingu á visir.is af fundi sem þroskahjálp hélt
með frambjóðendum allra flokka, skrýtið hve
stjórnarflokkarnir lifa í góðu þjóðfélagi en hinir sjá að breytinga
er þörf, þó virtust allir vera með á því að "leyfa" öryrkjum og
ellilífeyrisþegum að vinna sér inn auka pening án þess að refsa
þeim fyrir það. Siv var spurð næstum því beint um geymslu
geðsjúkra á úrsér gengnum salernum, hún tönglaðist sífellt á
hve þjónustan væri að batna og það væru 30 milljarðar á leiðinni
inn í kerfið.... og ekki ætti að vera með það gamaldags úrræði
að vista geðsjúka á sjúkrahúsum, þeir ættu að vera heima hjá sér að
sækja svo göngudeild....Já nú skil ég það eru þá er enginn
geðsjúkur heldur eru þeir allir
létt-geggjaðir.
»
Síður: 1 2 3 ... 17
|
Heimsóknir
Í dag: 47 Alls: 58109
Dagsetning
9. febrúar 2010
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 13 október
|